Opni leikskolinn

Vid mædgur løbbudum alla leid a opna leikskolann og thad tok rett innan vid klukkutima. Hun er nottla langyngst tharna eda adeins 10 og halfs vikna:) og su næstyngsta i dag var 6 mananda, fædd 12.sept. Hitti fullt af nyju folki. Thad er audvitad komid allt annad folk en var thegar vid Hakon attum tidar ferdir thangad, thvi nu eru hans jafnaldrar løngu komnir a leikskola eins og hann.

Myyndlist: Eg er byrjud a 3dju myndinni, sem er skrauthøll og einhver fantasia thar i kring. Er anægd med arangurinn sem er kominn og eg mun taka myndir af teikningunum sem eru ad sjalfsøgdu gerdar med svørtum pennum og gullpennum. Ekkert er skemmtilegra en thær græjur!! Lilla sefur nuna og eg er buinn ad setja nokkrar myndir og tvø video inna facebook med litlu gullunum minum;)  


Loford svikid

Æ eg sveik vist lofordid um ad skrifa a hverjum degi thvi nu hef eg ekki skrfad i marga manudi!!!!  Eg er byrjud a thridja verkinu med svørtum pennum og gullpenna. Hef adeins tima til ad gera thau a kvøldin. Markmidid er ad gera 10 til 15 svoleidis

Perluhnýtingar

Loksins fann ég perludúkana fimm sem ég hef hnýtt fyrir löngu síðan.  Ég mun taka mynd af þeim við tækifæri.  ég fór í föndurbúð í dag og var svo heppin a eiga inni 20 punkta í Föndru að ég þurfti aðeins að bæta við 250kr rúmlega;)  Ég fékk mér því girni og e-ð af perlum til að dunda við í kvöld og hlakka ég mikið til að byrja á þessari iðju aftur.  Ég er í saumaklúbbi í Noregi og ætla að selja dúkana á næstu jólasölu. ég keypti 3 jólalega liti: gull,rauðan og grænan:)  Mikið tilhlökkunarefni í gangi.

Alltaf á leið í vinnuna...

...þá fæ ég hugmyndirnar!!!  ein með sjálfri mér, labbandi í vinnuna hef ég nógan tíma til að hugsa óáreitt.  Fékk enn eina myndefnishugmyndina og á enn eftir að framkvæma hina hugmyndina með myndefninu "söknuður".  Næsta mynd á eftir henni mun heita "draugar fortíðar".  Hún fjallar um samheldna fjölskyldu sem alltaf hittist, oftast á einum stað, hjá foreldrum mínum t.d. og spilaði og borðaði góðan mat saman.  Það var alltaf fullt hús af fólki.  Svo þegar þrjár manneskjur veiktust og kvöddu þennan heim (allt á aðeins 4 árum) breyttist allt saman.  Húsið tæmdist og næstum enginn kom þangað, aðeins sjaldan.  Myndin mun sýna fjölskyldu við borðstofuborð að spila (ekki endilega mína fjölskyldu) þrjár konur við borðið hafa englavængi og sumir líta venjuæega út meðan aðrir hafa hvítt draugaklæði yfir sér, með göt fyrir augu.spilandi.  Tek það fram að þetta mun ekki vera mynd af minni familíu, bara dæmi um samheldni sem hvarf, allir fóru í sínar áttir og andlát urðu til þess að óteljandi breytingar áttu sér stað.

Sveik eigið loforð-Í BILI

Sorrý, ég segi það við sjálfa mig því ég hef svikið loforð um að teikna á hverjum einasta degi.  Ég er að vinna að stórri,mikilvægri sálfræðiskýrslu, taka viðtöl ofl.  Þyrfti að tala við fleiri en 2 börn til að fá meira afgerandi svör því stundum segja börnin bara: Ég veit ekki.  Sama hvað maður reynir að toga uppúr þeim.  Einn sagði:" En pabbi veit það".

Viðbót við ballerínurnar "Blómin herma"

Það var vitleysa og gleymska í mér að ballerínurnar hafi verið dansandi á skýjum í loftinu.  Var búin að gleyma því!  Með það í huga að þær væru í lofti á skýjum hugsaði ég mér að færa þær/skýin með þeim á, nær jörðu, en ekki alveg á jörðina til að sýna að smá jarðbinding væri í þeim:) Svo sá ég í dag að þær eru dansandi á grasbökkum á vatni.  er í vandræðum með að gera raunverulegt útlit á vatn svo ég geri sem minnst af því svo myndin sé ekki ofhlaðin.  Hef bætt svo mörgu við myndina að ég ætla að hætta núna og segja að myndin sé tilbúin. 

Það var svo mikið rými/tómarúm eftir á himninum að ég gerði punktalínulaga ballerínu þar, eina risastóra og frá henni komu sveipaðar "gullbylgjur" gerðar með punktum með gullpenna, sem á að undirstrika að hún sé á hreyfingu.  einnig bætti ég við nokkrum svörtum punktum kringum hinar (svörtu) ballerínurnar til að sýna að þær væru LÍKA á hreyfingu.  Ég segi þetta gott með þessa mynd og tek fljótlega ljósmynd af henni til að sýna hér.

Hugmynd að næstu mynd.  ég fékk hana í fyrrakvöld meðan ég labbaði í vinnuna og hef hugsað um þetta myndefni alveg síðan.  Meðan ég gekk í vinnuna, sá ég fyrir mér 3 konur sem voru mér mjög nánar en eru ekki lengur hér meðal okkar.  Þær voru "límið" í fjölskyldunni og nú þegar þær eru farnar hefur margt breyst....fjölskyldan fer í þúsund mola án þeirra.  Þetta eru þær mamma, systir hennar hún rebekka og föðursystir hún Camilla sem lést í fyrra.  ég sá þær fyrir mér birtast við vegarbrún hinum megin götunnar og brosa til mín, allar standandi saman.  Þetta verður næsta myndefni.


Æiii:(

Ég var búin að skrifa hér heila grein, þá allra fyrstu en svo birtist hún ekki:( kannski kellan ég hafi bara gleymt að vista færsluna? Who knows.  en allavega, þá snýst þetta blogg um mín listaverk og mitt líf:) með minni fjölskyldu.  Ég hef sett inn nokkur öldruð listaverk en mun í framhaldinu segja frá verkum sem ég er að vinna að og síðan sýna þau hér.  Ég fékk þá hugmynd að reyna eftir bestu getu (nema þegar ég fer burt í frí og hef ekki aðgang að tölvu) að blogga á hverjum degi því ég hef heitið sjálfri mér að vinna að verkum mínum á hverjum einasta degi...hverjum EINASTA!  Þessa hugmynd fékk ég úr bíómyndinni Julie and Julia þar sem Julie, mikill aðdáandi Juliu Child prófar eina uppskrift Juliu Child á hverjum einasta degi í heilt ár (ekki bara eina uppskrift heldur eftir heilli bók!)

ég er u.þ.b. hálfnuð með teikningu sem ég teikna með svörtum og gull pennum og heitir hún:"Blómin herma".  Ballerínur dansa á skýjum og hjá hverri þeirra er blóm sem hermir eftir stellingum þeirra.  Þetta var ekki fyrirfram ákveðið myndefni, og það er sjaldan fyrirfram ákveðið þegar ég sest niður og ætla að teikna. Þetta er eins og að vera með heilann sjálfan í fingrunum þar sem höndin ræður ferð:) Bara spennó:D  Ég set líka inn saumamyndir sem eru krossasaumaðar.


Um bloggið

Listaspíran

Höfundur

Auður Brynjólfsdóttir
Auður Brynjólfsdóttir
Ég er listmálari. Bý í Noregi en er frá Reykjavík. Hér hef ég búið í 2 ár, eða síðan 2010, með kjarnafjölskyldu minni, Halla og okkar barni Hákoni sem nú er 3ja ára.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • DSCF2251
  • Hinn hlutinn
  • annar hlutinn af henni
  • Myndin í heild
  • L1090680

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband